 |
Ronaldinho
hlaut flest atkvæði allra í kjörinu á uefa.com
NordicPhotos/GettyImages |
Fjórir frá Barcelona í liði
ársins hjá UEFA
Knattspyrnusamband Evrópu
hefur nú birt niðurstöður úr skoðanakönnum lesenda heimasíðu
sambandsins þar sem lið ársins 2006 var valið. Það kemur líklega
ekki á óvart að leikmenn Barcelona og landsliðsmenn Ítalíu eru þar
áberandi.
Næstum fjórar milljónir
atkvæða frá 390 þúsund notendum komu inn í könnuninni á uefa.com,
þar sem lesendum var gefinn kostur á að velja draumalið síðasta árs
og besta þjálfarann.
Evrópumeistarar Barcelona
eiga fjóra leikmenn í úrvalinu, þá Samuel Eto´o, Ronaldinho, Carles
Puyol og Gianluca Zambrotta. Þá voru þeir Zambrotta, Fabio
Cannavaro og Gianluigi Buffon úr ítalska landsliðinu allir í
úrvalinu.
Liðið var skipað eftirtöldum leikmönnum:
Gianluigi Buffon (Juventus)
Gianluca Zambrotta (FC Barcelona)
Fabio Cannavaro (Real Madrid CF)
Carles Puyol (FC Barcelona)
Philipp Lahm (FC Bayern München)
Steven Gerrard (Liverpool FC)
Cesc Fabregas (Arsenal FC)
Kaká (AC Milan)
Ronaldinho (FC Barcelona)
Thierry Henry (Arsenal FC)
Samuel Eto'o (FC Barcelona)
Þjálfari: Frank Rijkaard (FC Barcelona)